Þeir orkugjafar sem mest eru notaðir af okkur mannfólkinu í dag eru þeir sem eru í appelsínugula hringnum á myndinni hér fyrir neðan. Mannkynið notar u.þ.b. milljón terajoules af orku á dag, en er það sirka 3000 sinnum það sem Palo Verde, stærsta kjarnorkuver Bandaríkjanna sem er í Arisona, býr til á dag. Því er óhætt að segja að mannkynið sé orkufrekur rekstur en þá vaknar spurningin, hvaða orkugjafi uppfyllir þessa gríðarlegu orkuþörf okkar? En þessari spurningu er ekki auðsvarað því orkugjafarnir sem sjá okkur fyrir allri þessari orku eru jafn margir og löndin sem þeir þurfa að sjá orku fyrir. Sumir þeirra eru þó aðgengilegri en aðrir og eru því notaðir meira fyrir vikið. Jarðefnaeldsneyti, t.d olía, kol og náttúrulegt gas, virðist vera oftast notað en vonandi breytist það á næstu árum þar sem þetta er allt saman orka sem mengar. Sem betur fer eru þó endurnýjanlegir orkugjafar sífellt að komast meira og meira í umferð. Dæmi um endurnýjanlega orkugjafa er vindorka, vatnsorka eða sólarorka. Endurnýjanleg orka er einungis 3,5% af orku sem notuð er í dag á jörðinni og er fólk að vona að árið 2030 verði þessi prósenta 6%. Það er þó ekki nóg vegna þess að ef við ætlum virkilega að reyna að hafa áhrif þá þyrfti orkunotkunin á endurnýjanlegum orkugjöfum árið 2030 helst að vera komin yfir 50%, en það er að vísu í besta mögulega falli. En til þess að sýna hversu fáránlegt það er að við notum ekki endurnýtanlega orkugjafa ennþá meira en við gerum nú þegar þá lendir nægilega mikil sólarorka á yfirborði jarðar á 71 mínútu til þess að uppfylla orkuþörf heimsins í heilt ár. Að vísu er dýrt í rekstri að nota sólarorku en það yrði klárlega þess virði til nokkurra ára litið.