Markmiðið með þessari afurð var að framleiða metan gas. Við rannnsökuðum metan á netinu og fundum að það væri ekki svo flókið að framleiða það sjálfir. Það eina sem við þurftum að gera var að blanda saman kúaskít og matarleifum. Til að flýta fyrir ferlinu höfðum við samband við Kemi og keyptum Hagameltu sem er ensím sem flýtir fyrir niðurbroti matarleifanna. Við hófum ferlið á því að að hafa samband við Húsdýragarðinn til þess að fá kúaskít. Þeir áttu nóg af því og var lítið mál fyrir þá að gefa okkur nokkrar fötur af skít. Þegar skíturinn var kominn í hús höfðum við samand við verslunarstjórann í Bónus í Holtagörðum og fengum að taka allan lífræna úrganginn sem þeir áttu sem var meira en nóg. Þegar við voum komnir með hráefnin smíðuðum við tæki þar sem háefnin voru sett í. Bakteríunar í kúaskítnum nærast svo á matarleifunum og hleypa út metan gasi um leið. Á tækinu eru tvö op, eitt þar sem hráefnunum var hellt ofan í og rör þar sem metan gasið er leitt eftir slöngu og upp í blöðru sem við notuðum til að halda metaninu. Það var gríðarleg vinna að stappa niður mataleifunum í mauk og það var mikið sull að reyna að hella kúaskítsblöndunni yfir í tækið. Við leyfðum þessu að sitja niðri í kjallara í skólanum en það var ekki nógu mikill hiti svo við þurftum að færa tækið yfir í hitakompu og stilltum þar upp hitara sem hitaði tækið með blöndunni. Hitinn innan í tækinum náði mest 40°C sem var sá hiti sem við vonuðumst eftir. Við lentum á vegg þegar við uppgvötuðum að blaðran sem við höfðum límt við endan á rörinu væri of stíf til að geta blásist upp. En við leystum úr þessu vandamáli með því að skipta einfaldlega um blöðru sem var léttara að blása upp.