Til þess að við getum haldið áfram að lifa með sama lifnaðarhætti og við gerum í dag þurfum við orkugjafa til þess að knýja allt það sem við notum í daglegu lífi t.a.m. bílana, snjalltækin, allt það nýja sem við erum stöðugt að finna upp og meira að segja líka til þess að hita upp húsin okkar. Ef við viljum njóta góðs af þessu öllu þurfum við samt fyrst og fremst að halda litlu bláu plánetunni okkar í lagi. Þess vegna vildum við skoða orkugjafa, þá sem við notum í dag og þá sem er mögulegt að nota seinna meir. Við fórum í þetta verkefni með það markmið að reyna að komast að því hvaða orkugjafi sem verið er að þróa í dag gæti verið lausn á báðum vandamálunum, nægilegri orku og hlýnun jarðar. Svo hér á þessari vefsíðu tökum við saman mögulega framtíðar orkugjafa sem og orkugjafa sem við notum í dag því hver veit nema að við séum að nota hagstæðasta kostinn nú þegar.
|